Aerial Yoga Kennaranám 200 RYT
💥Nýtt Aerial Yoga kennararanám hefst í október 2024
Langar þig að kenna Yoga og fara út fyrir þægindaramman þinn? Langar þig að gera eitthvað nýtt og spennandi? Langar þig í skemmtilegt nám sem gefur þér færi á persónulegum þroska? Ef svo er þá gæti þetta verið námið fyrir þig.
Yogasálir munu bjóða upp á Aerial Yoga kennaranám haustið 2024. Námið hefst í október og lýkur í mars. Kennt er eina helgi í mánuði frá föstudegi til sunnudags eða fimm helgar. Námið er staðnám og er viðurkennt af Yoga Alliance og Jógakennarafélagi Íslands.
Námið byggist að stórum hluta á notkun á slæðunni og kennslu í henni. Farið verður í hvernig hægt er að byggja upp flæði á öruggan og skilvirkan hátt. Þú lærir hvernig á að hirða um slæðuna og hvernig öruggast er að hnýta hana upp. Farið verður ítarlega í leiðréttingar á stöðum í slæðunni.
Námið leggur áherslu á að nemendur öðlist þekkingu á jógaheimspeki og hvaðan jógað kemur sem við erum að læra. Einnig verður kenndur grunnur í anatómíu og farið í gegnum orkustöðvakerfi líkamans. Kennt verður einnig inngangur að slökun í slæðu og hvernig nota má Gong, skálar og önnur áhöld fyrir tónheilun til að ná djúpri slökun.
Milli námshelga fá nemendur verkefni til að vinna í og skila inn á ákveðnum dagsetningum. Einnig er gert ráð fyrir að nemendur æfi sig á milli námshelganna en allir nemendur fá opið kort í Yogasálir um leið og þeir hafa staðfest skráningu í námið, sem gildir þangað til námi lýkur.
Frekari upplýsingar um námið og hvernig þú sækir um er að finna hér fyrir neðan.
Uppbygging námsins.........
Umsókn um kennaranám
Vinsamlegast fylltu út formið hér að neðan ef þú villt sækja um 200 RYT Aerial Yogakennaranám Yogasála. Um leið og þú hefur sent umsóknina inn, færðu sendar upplýsingar til að greiða staðfestingargjald 65.000kr. sem er óendurkræft (staðfestingargjald dregst frá heildarverði).
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um námið áður en þú skráir þig getur þú sent póst á yogasalir@yogasalir.is og við veitum þér allar frekari upplýsingar.