top of page
nr966-15.jpg

Yogasálir

Skilmálar

Yogasálir ehf. er rekstaraðili Yogasála verslunar 
Yogasálir ehf. 
Eyravegi 38  
800 Selfoss
898-1099

Yogasálir áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru: 
Allar pantanir eru afgreiddar 2-4 dögum eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Yogasálir ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Yogasálum til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf. Frí heimaending er á pöntunum 10.000kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Verð á vöru og sendingakostnaður: 
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk nema ef um kaup á áskriftarkortum er að ræða, en þau bera 0% vsk,  Sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingakostnaður er 600 kr. nema þegar verslað er fyrir 10.000kr og yfir, þá fellur sendingarkostnaður á seljanda.

Trúnaður (Öryggisskilmálar):
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Lög og varnarþing:
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.

Að skipta og skila vöru:

Námskeið, kort og gjafakort fást ekki endurgreidd og þeim er ekki hægt að skila. 
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara: 
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiða Yogasálir allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum ef þess er krafist. 
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Skilmálar greiðsludreifingu:

Sé um greiðsludreifingu að ræða gildir eftirfarandi:

Ég, greiðandi, (hér eftir “meðlimur”) óska eftir því að gera samning um greiðsludreifingu vegna kaupa á ótímabundnu korti hjá Yogsálum - Yogastúdíó (hér eftir „Yogasálir“). Kortið veitir meðlim fullan aðgang að opnum tímum hjá Yogasálum frá og með dagsetningu kaupa.

Greiðandi þarf að staðgreiða einn mánuð við gerð samnings þessa og greiða aðra mánuði fyrirfram í upphafi hvers mánaðar. Sé ekki innistæða fyrir greiðslum á gjalddaga skulu dráttavextir og lögbundinn innheimtukostnðaur vera borinn af meðlim.

Skilmálar greiðsludreifingarsamnings:

Yogasálir skuldbinda sig til að hafa í boði þá þjónustu sem auglýst er á hverjum tíma og veita meðlim aðgang að opnum tímum sem Yogasálir

bjóða upp á, svo lengi sem pláss leyfir. Kortið veitir meðlim þó ekki aðgang að lokuðum tímum eða námskeiðum sem Yogasálir bjóða upp á gegn gjaldi en Yogasálir bjóða upp á sérstök kjör á slíkum námskeiðum.

Meðlimur kemur í Yogasálir á eigin ábyrgð og lofar að ganga vel um stúdíó Yogasála. Meðlimur er ekki heimilt að framselja rétt sinn og athygli er vakin á því að kort sem er í greiðsludreifingu er tímabundinn samningur sem hægt er að segja upp eftir 2 mánaða bindingu, uppsagnarfrestur er 1 mánuður. Hinsvegar er hægt að leggja inn kort þegar það þarf í lengri tíma en 4 vikur gegn framvísun læknisvottorðs.

Skilmálar: Welcome
bottom of page