

🔥 Hot Yoga 🔥
Viðburðir hjá Yogasálum. Byrjum með fasta viðburði í haust og vetur. Skoða viðburði á næstunni

Kennaranám 2023

Hot Yoga kennaranám með Jimmy Barkan og Yogasálum haust 2023.

Þú getur líka skannað
apppið í símann þinn 👉
KarlaYoga - Lokað námskeið
6 vikna námskeið - 2x í viku á þri. og fim. kl: 19:00 - 20:00
- Started Sep 5Started Sep 5
- 29,900 Icelandic krónurISK 29,900
- Location 1
Available spots
Service Description
Ertu stirður eftir vinnuna? Siturðu mikið og teygir of lítið? Viltu auka liðleika og bæta styrk? Þá er þetta námskeið fyrir þig. Sér tímar bara fyrir karlmenn þar sem unnið er með að mýkja líkamann og bæta hreyfigetu. Margvíslegur annar ávinningur fæst með því að stunda yoga s.s meiri vellíðan, minni streyta, sterkara ónæmiskerfi o.fl. Kennt verður yogaflæði, standandi jafnvægisstöður og teknar djúpar teyjur í lok tímans ásamt því að kenna rétta öndun í yogastöðum. Í lok námskeiðs mun þátttakandi kunna grunnstöður í yoga og geta unnið með þær sjálfstætt. Námskeiðið er kennt í sal með infrarauðum hita og raka. Salurinn er hitaður þannig upp að hitinn vinni með okkur og mýki líkamann sem er forsenda fyrir að vinna með stirðleika og auka liðleika. Umsögn um námskeiðið: - "Ég er örugglega erfiðasta verkefni sem þú hefur fengið í stúdíóið til þín, því ég er svo mikill spítukarl" - "Ég finn þvílíkan mun á mér núna eftir nokkur skipti og svakalega er þetta gott" - "Akkúrat það sem hentar mér og maður fær alltaf tækifæri til að gera allar stöður á sínum forsendum" - "Svo gott að komast í slökun í lok hvers tíma og ferðast aðeins inn á við" - "Gott að kúpla sig frá og finna virkilega hvíldina sem líkamin er að kalla eftir" - "Ég kem örugglega aftur" Kennari er Grímur Sigurðsson 500 RYT frá "Barkan Method Of Hot Yoga" Námskeiðið hefst 5. sept. og lýkur 12. okt. Kennt er á þri. og fim. kl: 19:00 - 20:00 ATH: - Námskeiðinu fylgir aðgangur í alla opna tíma í stúdíóinu meðan á námskeiði stendur. - Árskorthafar þurfa að skrá sig með því að senda tölvupóst á yogasalir@yogasalir.is - Bjóðum upp á greiðsludreifingu til allt að 36 mánuðum ef greitt er með kreditkorti.




Upcoming Sessions
Contact Details
Yogasálir-Yogastudio, Selfoss, Iceland
+354 898-1099
yogasalir@yogasalir.is